Heimasíða HMS um raka, myglu og innivist
- Samtök um áhrif umhverfis á heilsu
- Dec 15, 2025
- 2 min read

Við vekjum athygli og minnum á þessa góða samantekt inn á heimasíðu HMS um raka, myglu og innivist.
Hér eru helstu háljós af heimasíðu HMS, ef nokkrum viðbótum innan [hornklofa] frá SUM.
,,Hvernig þekki ég myglu?
Í sumum tilfellum er mygluvöxtur innandyra ekki sýnilegur en skrítin lykt, stundum kölluð saggalykt ætti að gefa vísbendingu um að mygla sé til staðar í rými.
Mygla birtist í ýmsum litum eins og brúnum, gráum, svörtum, hvítum, gulum, bleikum, grænum og rauðbrúnum lit.
Ef leki hefur verið á svæðinu sem um ræðir má reikna með að um myglu sé að ræða.
Hvar birtist mygla helst?
Mygla getur t.d. leynst aftan á veggklæðningu, veggfóðri eða panel, bak við flísar, eða undir gólfteppum og púðum.
Aðrir hugsanlegir staðir geta verið inni í veggjum í kringum pípulagnir (pípulagnir leka eða mikil rakaþétting), á yfirborði veggja á bak við húsgögn (þar sem raki þéttist, sérstaklega er hætt við því við útveggi), inni í stokkum loftræsikerfa og í þaki (vegna leka í þaki, of lítillar loftunar eða ófullnægjandi einangrunar).
Mygla getur einnig komið fram í þvottavélum og ryksugum.
Heilsan og mygla
Mygla getur haft ýmis neikvæð áhrif á heilsufar fólks og þarf því að takmarka eins og hægt er að vera í húsnæði eða rými þar sem mygla er.
Hér eru nokkur góð ráð til að halda góðu innilofti:
Lofta í gegnum rými tvisvar á dag, í u.þ.b. 10 mínútur í senn, [og hafa opnanleg fög opin yfir daginn].
Loftræsta vel þar sem föt eru þurrkuð
Banna reykingar [og vape] innandyra
Þrífa, [ryksuga með hepa filter] og þurrka reglulega af
Koma strax í veg fyrir hvers konar vatnsleka og fjarlægja rakaskemmd byggingarefni
Nota ofnæmisprófaðar rúmdýnur, sængur og kodda, [húsgögn, innréttingar, gólfefni, fatnað og innanstokksmuni]
Lofta vel um þegar framkvæmdir eru gerðar
Forðast að kaupa [og nota snyrtivörur,] hreinsiefni eða aðrar efnavörur sem innihalda [...] ilmefni, eiturefni eða rokgjörn efni.
Tryggja að ofnar/hitun húsnæðis sé í lagi.
[Tryggja að loftræsting sé í lagi og hún viðhaldin / hreinsuð reglulega]
[Lofthreinsitæki geta komið að góðum notum, sérstaklega á vinnustöðum, skólum, og öðrum stöðum með fólksfjölda, en einnig heima við, t.d. heimili við umferðargötur eða aðra mengunarvalda.]
[Þrífa vel í kringum vaska, klósett, eldavélar og sorpgeymslur.]
.png)




Comments