top of page

Rafrænir kynningarfundir SUM

Sep 7
1 min read

Sum fer af stað með rafræna kynningafundi út starfsárið. Fundirnir eru skipulagðir sem 1 klst, þar sem kynningaraðili heldur stutta kynningu um ákveðið þema umhverfisveikinda, og svo gefst hálftími til spurninga og samtals.


Fyrsti Kynningarfundurinn verður haldinn á teams 9. september, kl. 20.00. Það er hún Linda Gunnarsdóttir sem mun halda kynninguna.


📍 HVAR? – Teams

📅 HVENÆR? – Miðvikudaginn 9. sept. kl. 20.00

👥 FYRIR HVER? – Félagsfólk SUM

💻 HVERNIG? – Vinsamlegast skráðu þig með hlekknum hér að neðan.


Linda Gunnarsdóttir mun vera með fjarkynningu hjá samtökunum SUM, þar sem hún fer stuttlega yfir hugmyndafræði Functional Medicine og heildrænar leiðir í átt að betri heilsu eftir veikindi vegna raka og myglu og önnur umhverfisveikindi. Hún mun svo taka á móti spurningum og samtali yfir seinni hluta kynningarinnar.


Linda Gunnarsdóttir er stofnandi og eigandi Endurheimtar og stofnaði að auki nýverið Skrefið með Lindu. Hún hefur í tæp 20 ár starfað sem sjúkraþjálfari og unnið með hundruðum einstaklinga sem hafa glímt við þreytu, verki, streitu og flókin heilsufarsvandamál. Þegar hún veiktist sjálf af umhverfisveikindum eftir íveru í raka- og mygluskemmdu húsnæði, lærði hún Functional Medicine í leit að leiðum sem hjálpa fólki að skilja heildarmyndina og byggja heilsuna upp aftur.


Í dag aðstoðar hún fólk við að finna raunhæfa leið áfram í batanum, skref fyrir skref. https://skrefid.is/pages/umhverfisveikindi


Kynningin er ókeypis fyrir félagsfólk SUM. Skráning: https://forms.gle/Cdh8vaV4vcbui4LQ9

Þáttttakendur sem skrá sig fá sendan teams hlekk stuttu fyrir fundinn.


Facebook viðburður er hér.

 
 
 

Comments


Til að ganga í samtökin - sendu okkur beiðni!

Árgjaldið er ISK 2900 – Hjartans þakkir fyrir stuðninginn!

bottom of page