Rafrænir kynningarfundir SUM

SUM fer af stað með rafræna kynningafundi út starfsárið. Fundirnir eru skipulagðir sem 1 klst, þar sem kynningaraðili heldur stutta kynningu um ákveðið þema umhverfisveikinda, og svo gefst hálftími til spurninga og samtals. Fræðslan er ókeypis fyrir félagsfólk SUM.
Annar Kynningarfundurinn verður haldinn á teams þriðjudaginn 13. október, kl. 20.00. Það er Friðbjörn Sigurðsson sem mun halda kynninguna.
📍 HVAR? – Teams
📅 HVENÆR? – Þriðjudaginn 13. okt. kl. 20.00 - 21.00
👥 FYRIR HVER? – Félagsfólk SUM
💻 HVERNIG? – Vinsamlegast skráðu þig með hlekknum hér að neðan.
Friðbjörn Sigurðsson, læknir á Sjúkrahúsinu á Akureyri og einn af stofnendum Akureyrarklínikarinnar, mun halda 30 mínútna fjarkynningu fyrir SUM-ara þriðjudaginn 13. október kl. 20.00 - 21.00. Að kynningu lokinni mun þátttakendum gefinn kostur á að bera upp spurningar, deila sjónarmiðum og samtali.
Friðbjörn þarf vart að kynna, en hann er íslenskur sérfræðingur í krabbameins- og lyflækningum. Hann hefur verið áberandi í umræðunni um áhrif umhverfis á heilsu og er landsþekktur fyrir brautryðjendastarf sitt í þágu sjúklinga sem glíma við flókna, fjölkerfabundna sjúkdóma á borð við ME/CFS (síþreytu), langvinnt Covid og umhverfisveikindi (t.d. heilsutjón vegna myglu innanhúss).
Akureyrarklíníkin er innlend þekkingar-, greiningar- og ráðgjafarmiðstöð fyrir einstaklinga sem glíma við ME-sjúkdóminn (síþreytu) og langvinn Covid-einkenni, sjá https://akureyrarklinikin.is/
Mikilvægt er að skrá sig á viðburðinn til að fá hlekk til þátttöku.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
.png)
.png)



Comments